Um Múrlínu

 

Fyrirtækið hefur á að skipa fjölmennum hópi fagmenntaðra múrara með góða og fjölbreytta reynslu. Hópurinn hefur sérhæft sig í öllu sem viðkemur hefðbundnu múrverki sem og nýjungum í múrverki,  innanhúss og utan, í smáum verkum sem stórum.

Utanhúsmúrverk er ein okkar sérgreina. Við höfum klætt mörg hús að utan, m.a. með vönduðum múrkerfum þar sem eldri hús eru illa farinn og þarfnast auka einangrunnar sé dæmi tekið. Einnig höfum við gert við stærri sem smærri fasteignir að utanverðu, hraunað, steinað og/eða pússað.

Verksvið okkar er vítt, allt frá hefðbundu múrverki , flísalögnum, Terrazzogólfum , marmarslípunum og yfirverkstjórn í stærri verkum.

Við viljum heyra í þér